|
|
06.03.2007 02:40:01 / ponsi
Hver ætli hafi verið sá fyrsti sem datt í hug eftir að hann sá
hænu verpa eggi, sem er btw örugglega að upplifa mesta harðlífi sem
finst í dýraríkinu, og myndi valda manneskju ólýsanlegum sársauka
við eitthvað sambærilegt, og ekki nóg með það heldur kemur þetta úr
endaþarminum á henni og sagt "hey, ég ætla að borða þetta"
Tja, stórt er spurt
»
29.01.2007 01:43:49 / ponsi
Úff, langt síðan ég bloggaði síðast. Ástæðan fyrir því er nú bara
einföld, ég á mér líf.
Nei ok, þetta plataði ekki neinn. Ég er bara búinn að vera að vinna
og hanga með hinu og þessu fólki. Það er alveg geðveikt að vinna í
nýju vinnuni minni  en ég má víst ekki tala mikið um vinnuna mína
og alls ekki blogga um neitt sem gerist þarna inni því það er víst
allt trúnaðarmál og þannig rugl. ég er samt með eina
trúnaðarmanneskju sem ég má segja allt og trúið mér, ég þarf á
henni að halda því ég yrði brjálaður á því að birgja þetta allt
inni.
Fór í körfubolta í dag með strákunum, þunnari en andskotinn og
spilaði alveg hræðilega illa, ætla svo sannarlega að taka mig á og
bæta upp fyrir mig næstu helgi og spila eins og jordan  svo
fórum við nokkrir í bíó áðan á blood diamonds. Mælið alveg með
þessari mynd, hún er mjög góð og leonardo dicaprio er bara orðinn
alveg skuggalega góður leikari (kom mér mjög á óvart). Svo reyndar
í stað þess að fara heim að sofa eins og ég hafði hugsað mér þá
fórum ég og þverdal heim til nóra með binna og horfum á mynd (já,
tvær á dag koma skapinu í lag). Horfðum á transporter, alveg ágæt
afþreying, engin óskarsverðlaunamynd en hún á rétt á sér. Ég er
búinn að vera ógeðslega þreyttur í dag og þessi dagur byrjaði nú
allt annað en vel. En það rættist nú bara vel út úr honum og ég er
búinn að skemmta mér mjög vel í dag. Ég sofna allavega með bros á
vör  En það er svo samt svo dæmigert að núna skuli ég ekki
vera jafn þreyttur og áðan, mig langar í raun að fara að sofa því
ég er búinn að plana að vakna í fyrri kantinum á morgun. Pæling
hvort ég skelli bara íþróttafötunum í þvottavélina or som til að
drepa tímann.. það er nú aðalástæðan fyrir þessari bloggfærslu, i
got nothing better to do  nei, ok ég hef full af hlutum að gera,
en að blogga er svona það eina sem ég nenni í augnablikinu
En já, plön, þarf maður ekki alltaf að vera að plana eitthvað
framtíðina og því um líkt? Læknabakterían er búin að festast í mér
aftur og er ég að spá virkilega mikið í því að fara í fjarnám í FÁ
til að læra líffræði og eðlisfræði og skella mér svo í
læknainntökuprófið sumarið 2008. Svo er ég reyndar með bak við
eyrað að flytja kannski bara til noregs í nokkra mánuði, það er
alveg góð pæling ef mér tekst að redda mér vinnu þar þá er ég
nebbla alveg game í að fara þangað. Kynnast einhverju öðru en sama
gamla íslandi (þó það sé nú alltaf best  )
En ég hef nú fátt að segja, ekki mikið sem hefur drifið mína daga
uppá síðkastið, vinna og meiri vinna framundan með lyftingum þegar
tími gefst til
»
15.01.2007 03:25:20 / ponsi
Jæja gott fólk, núna nenni ég loksins að blogga eitthvað smá.
Árið 2007 byrjað að líða og eins og stefnan er núna virðist þetta
ætla að verða stórgott ár. Mikið af breytingum, en þær eru oft af
hinu góða. Ég er kominn með nýja vinnu uppá landspítala sem
stuðningsfulltrúi á geðdeild. Ég svona basicly sé um að aðstoða
fólkið sem er á deildinni og vera því til halds og traust þegar það
þarf og einnig ber ég ábyrgð á öryggi hjúkknana mér finnst það
mjög skondið, og það er meira að segja að vera senda mig á
sjálfsvarnarnámskeið svo ég geti yfirbugað sjúkling án þess að
meiða hann.. þetta er ekkert smá námskeið, svipað og löggurnar fara
í, þetta er 40 klst námskeið sem er kennt á 5 dögum ég á eftir
að vera illa lemstraður eftir það en fólkið á deildinni er
yndislegt og mér finnst mjög gaman í vinnunni, og þó að þetta sé
illa borgað þá munar um það að ég er í alveg fríu
fæði 
Hvað meira er að frétta af mér... hmmm.. ég er byrjaður að lyfta
aftur á fullu, reyni að hreyfa mig eitthvað á hverjum degi. Við
erum núna 9 strákar sem spilum orðið körfubolta á sunnudögum..
okkur vantar reyndar 1-3 í viðbót ef einhver hefur áhuga bara
hafa samband við mig eða péter. þetta er alveg ógeðslega gaman og
þó að menn geti orðið aðeins of kappsamir er þetta bara leikur og
allir skemmta sér vel. Núna er ég t.d. að deyja úr harðsperrum, en
þær hverfa og víkja fyrir nýjum í komandi viku 
Eftir mikið nöldur í vinkonu minni og með sannfæringu annarar ákvað
ég að stofna svona myspace dæmi. kom mér á óvart hvað það eru
margir með þetta, allavega fleiri heldur en ég vill trúa af fólkinu
í kringum mig. en það er bara gaman að því, og ef þú vilt sjá
prófílinn minn geturu farið á www.myspace.com/krisgeir drop
me a line 
Hvað fleira.. fór á djammið í gær í góðum félagskap og hitt
ég ekki bara hann magna á 11-unni. það væri ekki svo sem bloggvert
fyrir utan það að ein konan sem var með honum var alltaf eitthvað
að strjúka mér þegar ég snéri baki í hana. svo þegar ég snéri mér
við og spurði what the fock, þá lét hún eins og hún hefði ekki gert
neitt þó ég hafi staðið hana að verki.. wierd people. Venjulega
hefði ég nú ekki kvartað en hún var kannski aðeins of gömul fyrir
minn smekk 
Planið fyrir morgundaginn er annars einfallt, vakna, lyfta, fara
að sækja skattkort og svo vinna kl hálf 4 til tólf. Sounds like fnu
(btw, þá skrifaði ég fnu viljandi, einkahúmor)
Já, svo erum ég og þverdal víst hættir við evrópuferðina, svo
sorry tóta og dísa, við munum ekkert heimsækja ykkur á spán í
sumar.. maby later, only time knows En þess í stað ætlum við að
fara ásamt einari til US and A og kíkja aðeins á hvað það land
hefur að bjóða fyrir 3 unga menn. Heimsækja noah og frænku gömlu í
Dallas planið er að kaupa eða leigja húsbíl þarna úti
og bara búa í honum á meðan við verðum þarna úti til að spara
gistikostnað. It's gona be like so much fun
Annars er klukkan orðin það margt að ég nenni þessu ekki lengur.
Ég bið ykkur öllum nema einni manneskju bara vel að heilsast
og má þessi eina manneskja bara éta skít og nú er hún formlega
algjörlega horfin úr lífi mínu Ekki hafa áhyggjur kæri
lesandi, ég er í mun betra skapi núna eftir að þessar aðstæður
þróuðust svo þetta er ekki sagt í reiði, heldur bara í fullri
ánægju 

»
04.01.2007 15:22:00 / ponsi
Ég tók þá ákvörðun í desember að eiga mér jólafrí. Svo ég sagði upp
í vinnunni með það í huga að ég myndi hætta 23 des. Jájá, ekkert
mál með það. Svo hugsaði ég bara með mér, "ahhh, jólafrí, örugglega
það fyrsta í 8 ár". Svo komu jólin (sem voru geðveikt btw) og jólin
fóru. Svo kom nýtt ár. Ég var búinn að plana það bara að leita á
fullu að vinnu strax 2. janúar. Auðvitað gerði ég það og er svona
90% öruggur að ég sé kominn með vinnu, fæ að vita það á morgun. En
ok, tilgangurinn með því að ég sé að segja ykkur þetta er að þetta
er 11 dagur atvinnuleysis míns. Fyrir utan 4 frídaga þar sem ég
hefði hvort sem er ekkert unnið þá eru þetta ca. 8 dagar án vinnu.
OM MY FOKKING GOD hvað það er ömurlegt að vera svona án vinnu, þó
það sé svona stutt. ég er gjörsamlega að verða geðveikur. Ég bara
verð að vinna greinilega. Hef náttla alltaf verið í skóla + ca 80%
vinnu (sem útskýrir námsárangur minn í gegnum tíðina  ) og svo
kemur bara allt í einu ekkert. Ég er greinilega meiri vinnualki
heldur en ég hélt, bjóst alls ekki við því að ég myndi fá svona
mikil fráhvarfseinkenni. Mig langar næstum því að fara aftur niður
á dominos, bara til að vinna, en eftir að ég frétti að því að hún
Hildur úr ánanaustum var byrjuð að vinna þar hætti ég nú við að
koma aftur  þeir sem vita þá sögu mega halda henni út af fyrir
sig  En eins og ég sagði, þá er ég örugglega kominn með
vinnu núna, allavega vona ég það alveg ógeðslega mikið
En af öðrum fréttum, hún amma mín er loks komin af sjúkrahúsi, var
meira að segja að aðstoða hana áðann að komast upp tröppurnar heima
hjá sér. Hún var reyndar svo mikið að sýna fram á það að hún þurfti
enga hjálp að hún var kominn upp hálfar tröppurnar áður en ég gat
komið niður á móti henni  Svo er reyndar eitthvað að mér núna
 hafði ætlað mér að vera geðveikt duglegur í ræktinni, hlaupa
og lyfta og svoleiðs hluti, en nei nei, þá þarf þessi líkami minn
að byrja að njóta letilífsins og núna leyfir hann mér ekki að fara
neitt. Síðust daga er ég búinn að þjást af svefnleysi (hef ekki
fengið góðann nætursvefn í 4 daga), miklum höfuðverk, hita og
kuldaköstum og meira í þeim dúr. Alveg afskaplega pirrandi. Er
sífellt þreyttur og kalt, en get samt ekki sofnað á næturnar... ég
held að líkaminn sé líka að mótmælta því að ég sé að reyna að snúa
líkamsklukkunni minni aftur við  það kemur í ljós.. ef það kemur
ekki bloggfærsla næstu 2 vikur, eða þið heyrið ekkert í mér þá er
ég örugglega bara dauður
Svo rakaði ég af mér wife beater skeggið í morgun. Shit ég var
búinn að gleyma því hvað ég er asnarlegur skegglaus  svo fékk
ég svölustu derhúfu í heimi afhenta í dag sem ég keypti mér af
amazon. Ok, hún kostaði 1500 kr, + 800 í flutnings og
meðhöndlunarkostað. Svo þegar ég fór og sótti hana þurfti ég að
borga 1360 kall í toll og kostnað  ég vissi ekki að maður
þurfti að borga svona mikið.. þetta er því formlega orðin dýrasta
húfa sem ég hef átt, enda hef ég venjulega bara verið með derhúfu í
vinnunni og ekkert meira en það. en eftir svona langan tíma þar sem
ég hef alltaf verið með derhúfu við vinnu er ég kominn með smá
söknuð að vera ekki með hana svo ég ákvað að skella mér bara á
eina. (vá, pældu í því, þú ert að lesa um það að ég var að kaupa
mér húfu. Ég veit að það er sorglegt að skrifa um það, en ég hef þó
allavega fátt betra að gera. En hvað ert þú að pæla? *points at
stupid person with no life*
»
03.01.2007 06:17:37 / ponsi
Ef ég ætlaði að gera lista yfir það sem ég gerði árið 2006 væri
hann óendanlega langur. Bara þegar ég hugsa út í það þá gerði ég
alveg afskaplega margt, ferðaðist, kynntist nýju fólki, breytti um
umhverfi og samband mitt við vini mína þróaðist mjög mikið. Samt
sem áður þá ætla ég að halda því fram að 90% allra minna ákvarðana
yfir árið hafi verið rangar eða teknar á röngum forsendum. Ég setti
mér óraunhæf markmið, hætti við háskólagöngu (tímabundið btw), ég
kom virkilega illa fram við manneskju sem þótti vænt um mig (*out
of the blue* bæ!), lagði of mikla áherslu á rangt fólk (yes God, we
are your zombies) (Drink up, not drinking is only gona make it
worse) og ég gæti haldið áfram endalaust. En þegar ég hugsa samt
betur út í hlutina þá hefði árið ekki verið jafn viðburðarríkt og
raun ber vitni ef ég hefði ekki gert þessa hluti. Og ég er allavega
reynslunni ríkari og hæfari til að geta tekið betri ákvarðanir á
þessu ári sem er nýgengið í garð. Með það að vopni er í raun hægt
að segja að allar ákvarðanir mínar hafi verið 100% réttar. Plús
þessi 10 auka % sem ég gerði rétt árið 2006 þýðir að allar mínar
ákvarðanir á þessu ári verða réttar og líka einhverjar sem ég tek
fyrir annað fólk... en bíddu, ha? en það þýðir að miðað við sama
hlutfall á þessu ári og því síðasta munu 99% allra minna ákvarðan á
þessu ári verða rangar og það lækkar hlutfallið fyrir næsta ár, sem
þýðir það að ég mun ekki taka rétta ákvörðun fyrr en ári 2216

Ok, getur einhver í fjandanum sagt mér hvað gerðist? Ég skil
ekki bofs í því sem kom út úr fingrum mínum, kannski skiljanlegt
því að ég bara búinn að sofa í 3 tíma núna, vaknaði bara out of the
blue og byrjaði að blogga. The brain is a strange thing.. En já,
árið 2006, án efa með betri árum sem ég hef lifað. búlgaría,
drykkja, gamlir og nýjir vinir, verslunarmannahelgin,
ólafsvík, river rafting, noah, allt þetta ásamt mörgu öðru gerði
árið yndislegt. Og þó að það séu líka leiðinlegir kaflar þá er
lífið ekki alltaf dans á rósum (ég skil ekki þetta orðatiltæki, það
hlýtur að vera ógeðslega vont að dansa á rósum) og maður getur
alltaf hugsað um það góða til að koma sér í gott skap.
Ég nenni raun ekki að hafa þetta lengra. Mikill hluti af því sem
ég gerði í ár er nú þegar skrifaður á bloggið mitt, og ef þú hefur
gjörsamlega ekkert betra að gera heldur en að lesa um það hvað ég
var að gera fyrir mörgum mánuðum then go ahead, knock your self out
you looser. Það er náttla bara alltaf best að tala við mig í
persónu, því þó að ég sé ljótur þá er ég ekkert svo leiðinlegur
(mamma segir það allavega), en svo er náttla líka bara alltaf hægt
að hringja. "Hringdu núna... Ef þú kannt á síma, fáviti!"


»
27.12.2006 06:42:28 / ponsi
Talandi um slappan bæ á annan í jólum. Var að koma heim eftir
eitthvað smá djamm og ég hef aldrei vitað af svona fáum niðri í
bæ.. gæti eitthvað með það haft að það er vinnudagur á morgun, hver
veit. En allavega, byrjaði kvöldið á því að fara í keilu með
þverdal, kára, brynjari, lalla, cleon og aroni. sjúklega gaman,
fórum svo heim til mín nokkrir og horfðum á jackass 2. shit hvað
það er fyndin mynd. Fórum svo ég og kári niður í bæ, og var það
frekar slappt. Kári ákvað bara að fara heim og virtist sem að ég
væri bara sjálfur á leið heim. Hitti ég þá ekki cleon, lalla og
aron aftur og fylgdi ég bara þeim. Fórum við á hverfis ásamt
einhverri stelpu sem aron og cleon þekktu. Þar var frekar slöpp
stemmning en við ákváðum að vera bara þar því þetta virtist vera
það besta í boði. Vorum við eitthvað að dansa bara og hafa gaman
að, reyndi þessi stelpa sem var með okkur að dansa eitthvað við
mig, en ég sýndi nú lítinn sem engann áhuga, enda í zero
hözzlstuði. Þegar hún vildi ekki láta mig í friði ákvað ég bara að
skella mér á barinn til að væta hverkarnar. Eftir að hafa talað við
sjúklegasta flottastu barþjónustustelpu sem ég hef séð lengi ákvað
ég að hitta strákaa aftur. tók ég eftir að stelpan var farin
eitthvað með aroni og ég spurði hvaða stelpa þetta eiginlega var.
Þá sagði lalli, æji bara systir vinar okkar.. hún er ungfrú
suðurland. Og ég bara "WHAT? þetta"? þá sagði cleon, jebb,
sunnlendingar hafa greinilega ekki betri smekk en þetta haha, ég
hló bara. svo eftir mikið af hittingi við fólk sem var með mér í
skóla og bara fólk sem ég þekki eða vildi óska að ég þekkti
því það var svo flott , fór ég bara heim enda edrú og
búinn með djammstuðið, ég á ekki auðvelt með að fara edrú á
skemmtistaði því ég er alltof meðvitaður um sjálfann mig. Sem betur
fer sýndi aron mér fram á það að það er bara lítill munur á því að
djamma edrú og fullur who would have guest that..??
En jólin komin og bara eiginlega farin líka. Mikið var borðar og
fékk ég helling af jólakortum, jólakveðjum og pökkum þó svo
að ég gefi ekki mikið af pökkum eru jólakveðjurnar ekki sparaðar
enda orð ódýr átti bara notalegt aðfangadagskvöld með minni
littlu familíu, svaf bara og borðaði á jóladag, og fór í jólaboð á
annan í jólum. þegar kvöldið byrjaði ætluðum við og þverdal á
djammið og reyna að fara með tótu, heiðu og dísu... en neinei, þær
beiluðu bara á okkur (já, þið heyrðuð rétt, beiluðuð fóru
bara að spila spil og fóru svo niður í bæ) fórum við þá bara í
keilu, eins og ég sagði fyrr í þessari færslu og framhaldið vitið
þið vonandi. XÞ
En hvað ber framtíðin í skauti sér? áramótin nálgast og er
kvöldið í fullum undirbúningi. Fólkið er til staðar og stemmningin
líka, það vantar bara staðsetninguna.. vonandi get ég sannfært
móður mín að leyfa mér að halda huges partý, ef ekki þá er það plan
b sem er heima hjá kára, og ef það gengur ekki þá er það plan C og
fara á 90'ball á nasa. og ef það gengur ekki heldur þá er það plan
D, edrú og á bíl hahaha, yeah right. nei ok, það er allt opið
ennþá.
En í fyrsta sinn í 7 til 8 ár er ég atvinnulaus ætla nú að
koma því í lag á morgun því þetta er ekki sniðugt ástand. þetta er
allavega góður hvati til þess að leita sér að nýrri vinnu. veit
bara ekki alveg hvað ég vill gera. En ég veit allavega hvað ég ætla
að gera þegar nýtt ár gengur í gær. Good by mr. alcahol ætla að
einbeita mér að því að komast í gamla formið mitt aftur og vera
duglegur að hlaupa og lyfta. Svo er maður bara á fullu að plana
evrópuferðina í sumar. It's gona be like fun 
En þetta verður ekki lengra.. en hvað er samt með þennan
mánuð? ég hef verið kallaður alveg furðulegust hluti núna uppá
síðkastið. dæmi, hálviti, fífl, afmælisbarn, svindlari, svikari,
sexy, bangsi, mongóliti, negri, sætur, redneck, belja (what?)
driver, kristján (i mean like, what?), dork, nörd, fyllibytta,
jólasveinn, grannur (hahaha), feitur (that's more like it), þögull,
pizzagaur, falskur og bara fleira sem ég man varla eftir eða vill
ekki hafa eftir hérna maður gengur undir mörgum öðrum heitum en
nafninu sínu greinlega 
»
18.12.2006 09:26:49 / ponsi
Vá, dugnaður hjá mér. ég er vaknaður kl 9. og hef ekkert betra
að gera heldur en að blogga. Vei.. Nei ég vill ekki ljúga að ykkur.
Ég er ekki enn farinn að sofa. Búinn að vera vakandi í rúmlega 18
tíma og var nú bara að detta innúr ræktinni og er alveg ótrúlega
ekki þreyttur. Svo hvað annað að gera meðan allri heilbrigðir menn
eru að vinna eða í skóla? tja, fátt anna hægt heldur en að
blogga.
En já, um hvað að blogga þá. Helgin. Föstudagur. Ég, lára og
biggi heima hjá bigga. Bjór + tequila og fullt af fólki í viðbót
sem kom mun seinna. dæmi, mcvillis, bísúll, váflan, sara og
eitthvað fólk með þeim sem ég þekki ekki neitt. En sjæse, þetta
kvöld var svaðalegt. Ég biggi og lára vorum þau einu sem voru á
einhverju tequila dæmi og við vorum svo full og svo leiðinleg alveg
eins og við ætluðum okkur ótrúlega var það gaman. En svo
leið á kvöldið og fólk var að fara að stefna niður í bæ. Ég ætla
ekkert að fara nánar út í kvöldið, bara það að ég+tequila =
RITSKOÐAÐ 
haha, nei segi bara svona. ég skemmti mér allavega skuggalega vel
(held ég, man ekki alveg allt) en það sem ég man var nú mjög gaman
En svo vaknaði ég bara kl 16 daginn eftir, klæddi mig og fór í
vinnuna. Var að vinna stutt með helling af þunnu fólki. Svo var ég
bara driver á laugardagskvöldið. Byrjaði á því að fara heim til
bigga og dabba og vorum við þar nokkrir strákar bara að chatta og
fíflast eitthvað.
Svo skutlaði ég lalla niður í bæ ásamt rikku held ég að hún
heiti. Þau 2 voru vægast sagt hress kíkti aftur heim til bigga
og þar var allt orðið fullt af fólki. Ætlaði að reyna að hitta
sigrúnu en neinei, hún ákvað að hverfa aftur til forna tíma þegar
það var ekki til bíll og labba heim. Fuss... nei, ok það hafa allir
gott af smá göngutúr En já, mér var farið að leiðast pínu svo ég
brunaði bara til nóra þar sem hann, frikki, þverdal og logi voru og
skutlaði ég þeim niður í bæ. og díses kræst, hvað þetta var mikil
vitleysa. Eitthvað fáránlegt drama í gangi, O.C style en jájá, það
reddaðist nú allt og ég fór heim þegar klukkan var að nálgast
5.
Hringdi þverdal svo ekki í mig kl 7, bara út úr þessum heimi
ölvaður, og svo sjúklega leiðinlegur að það endaði með því að ég og
hann byrjuðum að rífast og ég skvetti hálfum lítra af vatni framan
í hann. hahaha, shit hvað hann varð pirraður, en það kom mér í
betra skap svo fór ég að sofa, svaf til kl rúmlega 4 í gær
og var að vinna til kl 2 um nóttina. nennti svo ekki að fara að
sofa svo ég fór bara að lyfta þegar world class opnaði í morgun og
er að spá í því að fara að sofa núna bara.
»
15.12.2006 03:27:30 / ponsi
Reiði getur verið alveg yndisleg tilfining. Hún gerir manni fært
um að gera hluti sem maður myndi venjulega aldrei gera, góða eða
slæma það er matsatriði. Hún fær þig til að iða í skinninu, og
langa bara að gera eitthvað out of the blue. Tökum mig sem
dæmi. Í gær var ég reiður. Ekki út í neinn ákveðinn, svona 90%
allrar minna reiði er í minn eiginn garð. Ég á það til að byrgja
reiðina alveg svakalega mikið inní mér og því er ég eiginlega
hættur að verða eitthvað reiður innanum fólk, og fæ heldur útrás á
sjálfum mér til að losa um spennuna. En já, allavega, ég var vægast
sagt reiður í gær og fyrradag, og ég er ekki að tala um neitt svona
pirring/reiði, bara reiði í sínu hreinasta formi. Pure and simple
rage. Það voru nú alveg margar ástæður fyrir reiði minni sem ég var
búinn að byrgja upp. Dæmi, þá var ég gjörsamlega sniðgenginn þegar
ég sótti um vinnu í íþróttabúð sem mig langar sjúklega mikið að
vinna í, fékk bara e-mail um að það væri búið að ráða í starfið.
Svo fór ég í vinnuna um daginn, og missti um 40000 kr í laun í
heilbrigðistékki (sem sagt svona auka bónus sem ég get fengið
mánaðalega). Ég gleymdi afmæli besta vinar míns, og það gerði mig
alveg sjúklega reiðann út í sjálfan mig. Svo er náttla ekkert svona
reiðiskast fullkomnað nema að stelpa komi við sögu líka. Ég ætla nú
ekki einu sinni að fara út í þá helvítis vitleysu. Svo var ég bara
orðinn ÓTRÚLEGA reiður út í sjálfan mig í fyrsta lagi að gera
mér vonir um eitthvað ( sem ég hef bara lært að ég á alls ekki að
gera ), og fyrir að vera svona ógeðslega blindur og auðtrúa
eitthvað. Það var svona nokkurveginn punkturinn yfir i-ið. I just
lost it. Ég var orðinn svo reiður yfir þennan mánuð að ég gat ekki
meira
Ég tók saman íþróttafötin mín, labbaði rösklega niður í world
class, skipti um föt og fór á hlaupabrettið. Stillti það á góðan
hraða og bara hljóp.. ég hljóp og ég hljóp og ég hljóp. ég jók bara
hraðan þar til að ég var kominn á það stig að ég var farinn að
misstíga mig af þreytu.. þá hætti ég nú, fékk mér góðann vatnssopa
og þurkaði svitann af enninu og fór í tækjasalinn. Þar fór ég í
hnébeygjutækið, setti ekki mikið á, eitthvað um 60 kíló, og byrjaði
bara. og ég hætti ekkert, ég hélt bara áfram þar til að álagið var
orðið svo mikið að það sprakk æð í nefinu á mér og blóðið byrjaði
svoleiðs að fossa út. ég get svarið það að fólk var bara hrætt við
mig. það sá bara eldlogann í augunum á mér, hina algjöru hreina
reiði. ég hætti nú þegar blóðið var farið að leka niður hálsmálið,
tók handklæðið og þurkaði mesta blóðið og fór inná bað þar til að
blóðið stoppaði og ég þvoði mér aðeins. en ég var ekkert búinn og
var bara í 90 mínútur í viðbót að gera gjörsamlega út af við mig.
ég bætti mig í öllum æfingum sem ég tók og ég hef aldrei svitnað
svona mikið. DJÖFULL LEIÐ MÉR VEL. Þetta var svona eins og að fá 10
fullnægingar í röð. Ég stóð fyrir framan spegilinn, allur titrandi
af áreynslu í blóðugum íþróttafötum. Fór svo í góða og langa
sturtu, kom heim og gjörsamlega dó. Svaf í 14 tíma í nótt. og vá
hvað ég þurfti á því að halda
Verið allavega fegin að ég fæ útrás fyrir reiði minni á sjálfum mér
en ekki á ykkur 
Svo vaknaði ég bara seinnipartinn í dag, með harðsperrur frá
helvíti, en mér er samt búið að líða svo vel í dag. Eyddi deginum
með þverdal og hittum eitthvað strákana hans í kringlunni, svo
eyddi ég seinnipartinum af kvöldinu að chilla með dóró. Mjög gaman
bara í dag, afskaplega rólegur dagur og ég er búinn að vera í alveg
geðveikt góðu skapi í dag. En ég verð að passa mig að byggja ekki
upp svona mikla reiði í mér aftur, og þess vegna ætla ég að fara að
lyfta aftur besta útrás í heimi sem maður fær við það
Sjáum hvernig regluleg æfing blandast saman við
jólamatinn.
»
11.12.2006 04:17:37 / ponsi
Shit hvað ég er orðinn gamall.. 21 það sem mér finnst
merkilegast er að ég hafi lifað til þess að verða 21. ég hélt
alltaf að ég myndi verða löngu dauður þegar að því kæmi. En ég hef
verið að hugsa aðeins.. pælið í þessu. Ok ég er 21, 2+1=3.
21/3 = 7. ok, ef þú plúsar svo saman 21 og 7 færðu 28. ekki
nóg með það þá er ég fæddur 85, og ef þú tekur 85/3 þá færðu 28,3.
Tilviljun? ÉG HELD EKKI. hvað þessi tala segir mér veit ég ekki, en
það hlýtur að koma í ljós á endanum.
En annars fékk ég alveg milljón afmæliskveðjur í dag.. hvernig
getið þið munað hvenær ég á afmæli? þegar ég vaknaði í morgun var
ég reyndar svo þunnur að ég var búinn að gleyma því að ég ætti
afmæli. Silly brain, doesn't work. En núna er maður víst orðinn
fullorðinn og þarf maður þá að fara að haga sér þannig? nei í
alvöru, ég spyr því ég veit það ekki. Ok, lítum samt á
staðreyndirnar. ég bý enn heima, ég er í sömu vinnu og ég var þegar
ég var í skóla, ég hef eignast alveg nokkra nýja vini síðan skólinn
hætti, en það er enn sami vinakjarninn, ég er enn single og ég
drekk ennþá.. það hefur bara lítið breyst í langan tíma og kominn
tími á breytingar held ég. þess vegna sagði ég upp í vinnunni, og
hætti 23 des, ég er að fara að flytja að heimann, núna vonandi 10
janúar (slæm dagsetning samt ) og ég þarf að finna mér nýja
vini. Nei, ok, þeir gömlu eru alltaf bestir sakar ekki að
eignast fleiri samt. Og svo er ég hættur að drekka svona mikið (með
fáum undantekningum). Ég ætla líka að fara að koma mér í
ræktina aftur fyrir alvöru þetta er ekki hægt lengur hvað
stelpumálin varðar HAHAHAHAHAHAHAHAAHA ég held að ég ætti
bara að hætta að lifa í afneitun og gerast munkur or
som 
En næst á dagskrá? Jólin.. núna eru bara 2 vikur til jóla. I say
panic people. Nei, hvaða stress er þetta alltaf á fólki um jólin?
Þetta á að vera hátið ást og friðar og einhver tróð jesú víst líka
inní allt þetta. Hvað ætli hann myndi segja í dag ef hann sæji
okkur vera að holdger umhyggju okkar í formi dýra gjafa? Gleymið
ekki fólk að við erum að fagna mikilvægum áfanga, fæðingu
jólasveinsins... nei,heyrðu wait, am i wrong..?
En annars nenni ég ekki að skrifa neitt af viti frekar en
venjulega. so just live long and prosper 
»
05.12.2006 04:16:40 / ponsi
Í dag (eða tæknilega séð í gær, s.s. 4 des) fyrir tuttugu og sex
árum gerðist einn sorglegasti viðburður í sögu rokksins. Fyrir hina
fáfróðu sem kunna fátt annað en að stilla fm 957 í útvarpið skal ég
upplýsa ykkur hvað gerðist. Þá tilkynnti led zeppelin að hún væri
formlega hætt, en hún hafði ekki verið starfrækt þá í nokkra mánuði
vegna dauða john bonham sem dó úr ofdrykkju nokkrum vikum
áður. Þar sem það var gjörsamlega ómögulegt að finna jafn góðann
trommara og hann ákváðu jimmy page, robert plant og john paul jones
að það væri bara best að slíta bandinu. Þó svo að þetta hafi verið
mörgum áfall (ég græt enn) þá hefur þetta örugglega verið fyrir
bestu, enda hefði það verið pínu asnalegt að reyna að halda þessu
áfram án besta trommara í heimi. En já, svona er bara lífið, allt
tekur enda. Þýðir lítið að gráta það. Ég er bara stundum svo
ósáttur við stefnuna sem tónlist í heiminum virðist hafa tekið. Ég
ætlaði gjörsamlega að bresta í grát þegar ég komst að því að Green
day var valin besta rokk og besta popp hljómsveit árið 2005 (minnir
mig) og þegar það er farið að flokka rokk og popp í sama flokk
þýðir lítið annað en að gráta og bölva heiminum. Pæling hvort maður
fari bara að grípa í gítarinn og fari að semja eitthvað alvöru
rokk??
»
01.12.2006 18:30:51 / ponsi
Ég fór og keypti mér nýjan síma áðan. Gegðveikt flottann samsung
síma. Þetta er fyrsti síminn sem ég kaupi mér svona nýjan út í búð
í ca 5 ár örugglega. Keypti hann með einsa áðan, en við vorum
eitthvað að chilla í kringlunni þar til hann fór að vinna.
Ég var að vinna í gær, gjörsamlega ógeðslegustu vakt sem ég hef
nokkurntímann gert síðan ég byrjaði á dominos. Nenni ekki að vera
að lýsa henni eitthvað nákvæmlega, en ég var kominn heim kl 3 í
nótt. Var sem sagt að vinna í nær 10 tíma við gjörsamlega ömurlegar
aðstæður. En hey, bara brosa 
Mig langar að koma með smá svona lýsingu á sjálfum mér (svona í
gríni bara til að lyfta ykkur fólki sem eruð að læra undir próf
aðeins upp) og vegna þess að ég hef fátt annað að gera í
augnablikinu. Enjoy 
Hæ, ég heiti Kristján. ég er að verða 21 árs gamall núna í
desember. Ég er 1930 mm á hæð, dökkhærður og ca 87000 grömm. Fólki
virðist líka við mig því ég er kurteis og sjaldan seinn. Ég hef
gaman af skeiðum og lyklakippum og nýt þess fátt betur en að vera í
góðum buxum. Ég er pínu loðinn eins og góðu spendýri sæmir, en
vegna þess get ég samt aldrei farið í dýragarða því fólk
öskrar venjulega þegar það sér mig og heldur að ég hafi sloppið úr
búrinu mínu. Ég er vanur því að hlaupa og get hlupið hratt, en það
er nú bara vegna þess að ég er vanur að vera eltur af fólki með
kyndla og heygafla þegar ég fer út úr húsi. Ég er vanur því að fólk
bendi á mig og hlægji, en ég hlæ bara með því það veit ekki að ég
er með ósýnilegann spegil fyrir framan mig svo fólk er í raun að
hlægja að sjálfu sér. Ég vinn mikið enda er ég besti
brauðstangatæknir sem dominos hefur nokkurntímann átt. Ég deili
bæli með hundinum á heimilinu því ég má ekki sofa í rúmi. Mamma mín
segir að ég megi vera þakklátur að ég fái allavega að sofa í
bælinu. Hundurinn fær samt koddan og sængina. En ég ætla ekki að
hafa þetta lengra enda veit ég ekki hvað fleira ég á að skrifa

Later gays
»
27.11.2006 03:45:10 / ponsi
Víííííí, megavikan er búin I feel so happy
*dances* En ánægjan varir stutt, því ég er að fara að vinna aftur
eftir minna en 7 tíma núna. Þá verður það 14 vaktin mín í röð en
ég á frí á þriðjudaginn á að fara í atvinnuviðtal eftir 4 tíma,
en ég veit ekki hvort ég nenni því. Sótti um sem bílstjóri hjá
póstmiðstöðinni, en ég held að vinnutíminn sé á kvöldin og ég
gjörsamlega nenni því ekki. Var að sækja um vinnu áðan samt í
adidasbúiðnni En vá, ég var ekki í góðu skapi þegar ég
var í vinnunni, enda alveg sjúklega þreyttur og pirraður á fólki,
en núna er ég í alveg sjúklega góðu skapi <- I love that
smiley he's so happy, like me right now.
En já, núna þegar megavikan er búin þá er um að gera að fara að
lyfta aftur. Er að spá í að skella mér í það eftir vinnu á
morgun. Svo er það bíó á þriðjudaginn. Tenasious D myndin.. shit
hvað mér hlakkar til. Er meira að segja búinn að finna mér "deit"
og allt haha, djók samt, er bara að fara með vinkonu minni sem
var að vinna einu sinni í garðabæ. Og svo var ég að komast að því
að það er að koma bjórkvöld hjá dominos 
En já, helgin var samt afskaplega slöpp eitthvað fannst mér.
Örugglega bara því að ég var svo þreyttur og eini edrú gaurinn í
öllum hópunum en það verður tekið með trukki næstu helgi enda þá
allir búinir að fá útborgað. Verst að það eru þá nokkrir byrjaðir í
prófum. Og svo virðist sem ég hafi misst hlutarstarfið mitt um
helgar núna þessa helgi veit það samt ekki alveg. me so
confused about what to do .. svo styttist sífellt í það að
kallinn verði 21 bara rétt um 2vikur . Svo á hún tóta afmæli
á þriðjudaginn.. Me plotting something funny to give her 
En ég hef í raun ekkert að segja.. er bara búinn að vera að
vinna eins og sjúklingur síðustu viku. Kannski get ég bloggað um
eitthvað af viti þegar fer að líða á þessa viku, you might never
know.
»
25.11.2006 04:37:21 / ponsi
Þar sem síðasta færsla var alltof mikið væl í mér ákvað ég að
bara að setja inn annað glory for you. Það er samt
alveg magnað finnst mér að þó að ég hafi tjáð mig svona á blogginu
mínu og sé pínu eftir því, ég meina halló, þá komst ég bara strax í
betra skap eftir að ég var búinn að skrifa þetta. Tjáning makes the
world go round.
Allavega, mig langar að deila með ykkur dálittlu skondu atviki
sem gerðist í vinnunni minni á fimmtudaginn. Þannig er mál með
vexti að ég var að vinna með henni írisi minni. Ég bað hana um að
fylgjast með búðinni á meðan ég skryppi á klósettið. Jájá, ekkert
mál hún fylgist bara með frammi og ég fer á klósettið. Svo þegar ég
er að labba aftur til baka inní búð tek ég svona hvítann dominos
poka, tek eina deigkúlu (sem við fletjum út til að búa til
pizzurnar) og set í pokann og bind fyrri. Svo labba ég að írisi og
segji við hana "hérna, geturu aðeins haldið á þessu á meðan ég
sendi eitt sms" eða eitthvað í þeim dúr. Hún tekur pokan og spyr
"hvað er þetta?". Þá svara ég "æji, klósettið er bilað svo ég
þurfti að nota poka.."
Ég get svarið það, svipurinn á manneskjunni var priceless. ég hélt
að hún ætlaði ekki að verða eldri, því hún trúði mér og hennti
pokanum í gólfið. ég gjörsamlega sprakk úr hlátri, og greyið íris,
hún var bara saklaust fórnarlamb í þessum hrekk mínum. Fyrirgefðu
elskan mín 
Ein spurning. Það er munaðarleysingjahæli á hól. Allt í kringum
hólinn er sýki sem er ekki hægt að komast yfir. Það er enginn brú
og gjörsamlega ómögurlegt að komast yfir á einhvern hátt. En
hvernig geta foreldrar krakkana þá komist yfir? Svarið mér
þessu.

»
25.11.2006 04:08:18 / ponsi
Jæja, föstudagskvöld og klukkan er að nálgast 4 og ég sit heima
og blogga Var eitthvað í littlu stuði til að djamma þar sem
ég er alveg ótrúlega þreyttur. Þreyttur er í raun vægt til orða
tekið. ég er gjörsamlega búinn. Er bara búinn að vera heima hjá
nóra í allt kvöld og tala við hann og þverdal og tinnu. Alveg fínt
svo sem, en mig langaði samt bara mest heim að sofa. En já, núna
ligg ég uppí rúmi með lappann og get lítið sofnað. Sem er
afskaplega pirrandi. Byrja alltaf bara að hugsa eitthvað og sekk
svo djúpt ofaní þá hugsun að ég get ómögurlega sofnað.
Einmitt það sem er í gangi í huganum á mér núna er fólk.
Einfaldlega fólk sem ég umgengs oft, allavega einu sinni í viku eða
oftar. Og þá er ég líka að tala um í sms, eða msn, vinnu eða síma.
Þannig er það nú bara orðið að ég og mínir félagar erum að verða
þekktir fyrir það að fara að djamma næstum hverja helgi. Það er
alveg sama hversu lítið er að gerast, þá virðist ég
alltaf getað reddað mér einhverjum stað til að drekka á eða bara
til að hitta skemmtilegt fólk og keyra það um bæjinn or som. En það
sem er farið að fara alveg virkilega í taugarnar á mér er að alveg
hellingur af fólki er núna alltaf að hringja í mig eða hafa
einhvernveginn samband við mig og spurja mig hvað ég er að fara að
gera í kvöld. Tja, venjulega er ég til í að hitta allt þetta fólk,
en málið er að það virðist stundum ekkert vilja hitta mig eitthvað.
það er bara að leita að stað til að djamma á því það finnur ekkert
sjálft. Svo kemur "er ekki í lagi að félagi minn komi með" eða
eitthvað í þeim dúr. Og ég meina, ef ég er að halda eitthvað þá er
það algjörlega minnsta mál. En þegar ég er að fara í partý til
einhverns annar sem ég þekki kannski lítið, eða vill bara hafa
lítið af fólki heima hjá sér þá gerist það alltof oft eitthvað að
ef ég segi "nei" að viðkomandi sem hringdi í mig verði
geðveikt fúll út í mig. Og það er farið að gera mig það pirraðann
að ég er hættur að svara sumu fólki sem er að hringja í mig. Og svo
er þetta fólk kannski aldrei eitthvað að hringja í mig og bjóða mér
eitthvað. Það er eitthvað afskaplega takmarkað. Ég er nær alltaf að
djamma með sömu gaurunum eða sama fólkinu því sumir af þessu fólki
sem ég heng með eru aldrei að bjóða mér eitthvað.. ég veit að ég er
ljótur, en er ég líka svona leiðinlegur? Tja, ég spyr ykkur fólk,
ég veit ekki svarið
En já, núna skal ég hætta að væla (finally) en mér
er svo sem alveg sama hvað ykkur finnst um þetta væl í mér. Þetta
er MÍN bloggsíða og ekki er ég að neyða þig til að lesa þetta er
það? NEI, hélt ekki. Skokkaðu á vegg
En annars hef ég fátt betra að segja. Vinna, vinna, vinna, og
já, kannski smá meiri vinna bara. er að vinna close á morgun, líka
hinn, dagvakt á mánudag, close á mið, fimt og rush á föstudag. 16
rush á sunnudag og svo veit ég ekki meira.
En já, ég er líka að spá í að bæta svona "tilgangslausum hlutum
og öðrum sem þú veist kannski og kannski ekki um mig" hérna á
síðunni.. þarf samt að finna betra og styttra nafn á þetta...
hmm.
Ok, "hlutir sem þú veist ekki og vilt ekki vita um mig" Prufa að
setja kannski nokkra puntka hérna núna til að sjá hvernig fólk
tekur í þetta btw, allt sem stendur hérna er satt, getið kannski
notað þetta til að reyna að skilja mig betur..
t.d.
- ég fór einu sinni til sálfræðings til að hjálpa mér að ná tökum á
skapinu mínu (anger managment)
- ég var 5 ár í verzló því ég var og er enn tossi
- Ég hlusta stundum á harðasta metall sem uppi hefur verið and love
it
- Ég var einu sinni trúlofaður
- ég þjáðist af kvíðaköstum þegar ég var yngri og finn enn fyrir
áhrifum þeirra í dag, en þau birtast núna í "raunveruleikafyrnun"
held ég að læknirinn hafi kallað þetta en þá basicly missi ég
tengsl við raunveruleikann í nokkrar sekúndur (10-15). Ástæðan
fyrir því að ég fæ þessi köst er að sögn lækna vegna "gífurlegs
áfalls á yngri árum" en ég hef mínar Matrix-kenningar.
- Ég er skrýtinn, og ef fólki líkar ekki við mig getur mér staðið
alveg gjörsamlega á sama, þá reyni ég ekkert að tengjast við það.
Ég get gjörsamlega lokað á allar tilfiningar til manneskju ef ég
vill það.
- ég hef aldrei á ævi minni orðið einmanna. Ekki það að ég sé
alltaf að drukkna í vinum, þvert á móti, ég get bara verið
virkilega óháður mannlegum félagskap. ég hef svo marga persónuleika
að þeir halda hvort öðrum félagskap
-ég rífst oft við sjálfan mig
en ég er orðinn of þreyttur til að halda þessu áfram.. nú er
bara að sjá hvort fólk missi algjörlega álit á mér en já allri eru
sérstakir.. sumir eru bara sérstakari en aðrir 
»
23.11.2006 05:58:33 / ponsi
Ef ykkur langar einhverntímann að sjá mig reiðann, og þá meina ég
virkilega reiðann, alveg svona snar band brjálaðslega froðufellandi
lemjandi svartann mann sparkandi í kettlinga reiðan þá er núna
góður tími. Þannig er nú það að ég var að uppfæra ipodinn minn eins
og ég hef gert oft áður, en núna í stað þess að verða betri, þá
ÞURRKAÐIST ÖLL TÓNLISTIN MÍN ÚT AF HONUM. nær 30 gb af tónlist sem
ég hef safnað í gegnum árin. rúmlega 5000 lög, og nú þarf ég að
byrja allt uppá nýtt.. ég er vægast sagt pirraður. Helvíti hafi þig
Steve Jobs
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
Dagsetning
10. febrúar 2012
|